4 Mars 2020 14:31

Þann 26. desember 2015 hófst leit að Guðmundi Geir Sveinssyni sem fæddur var 13. apríl 1974 og búsettur á Selfossi en sterkar vísbendingar voru um að hann hafi fallið í Ölfusá við kirkjugarð Selfoss. Leitin reyndist árangurslaus og var hætt en allar götur síðan hafa menn svipast um eftir því hvort eitthvað fyndist sem skýrt gæti hvarf hans.

Þann 18. maí 2017 fengu sjómenn á snurvoðarbát upphandleggsbein úr manni í veiðarfærin þar sem þeir voru við veiðar á Selvogsgrunni.   Sýni úr beininu var sent í aldursgreiningu með geislakolsaldursgreiningu og fékkst þar sú niðurstaða að það væri úr manni sem að líkindum hefði látist á árabilinu 2004 til 2007 og því fáir sem komu til greina sem eigendur að því.   Í janúar s.l. var ákveðið að útvíkka árabil þau sem leitað var innan og við rannsókn Rättmedicinalverket í Svíþjóð kom í ljós að DNA snið úr beininu samsvaraði DNA sýnum sem aflað hafði verið úr aðstandendum Guðmundar Geirs þegar hann hvarf.     Fundað hefur verið með aðstandendum um þessa niðurstöðu og verða þessar jarðnesku leifar afhentar þeim á allra næstu dögum.