13 Febrúar 2007 12:00

Í síðustu viku var beitt sáttamiðlun í máli pilts sem sprengdi stætisvagnaskýli með heimatilbúinni sprengju í Hafnarfirði á dögunum. Tjónið var umtalsvert.  Komið var á fundi með tjónvaldinum og foreldrum hans, lögreglu og eigendum stætisvagnaskýlisins, þ.e. Hafnarfjarðarbæ. Samkomulag náðist um að falla frá kröfum gegn því að pilturinn ynni eina viku hjá þjónustumiðstöð bæjarins. Laun hans munu renna upp í kostnað sem hlaust af sprengjunni.

Sáttamiðlun í sakamálum er nýtt tilraunaverkefni sem hófst 1. okótber sl. og gildir í tvö ár. Sáttamiðlun stendur öllum til boða sem náð hafa sakhæfisaldri en sé þolandi eða gerandi yngri en 18 ára skal lögráðamaður samþykkja að sáttamiðlun verði beitt. Þetta nýja úrræði er til hagsbóta fyrir bæði þolendur og gerendur og þar með samfélagið allt. Að tveimur árum liðnum verður árangur verkefnisins metinn og ákvarðað hvort úrræðið skuli verða varanlegur hluti refsivörslukerfisins.

Smellið hér til að lesa nánar um sáttamiðlun í sakamálum.