6 Ágúst 2008 12:00

Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Einn var stöðvaður á föstudag, sjö á laugardag, fimm á sunnudag, þrír á mánudag og einn aðfaranótt þriðjudags. Fjórtán voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Þetta voru fimmtán karlar á aldrinum 20-53 ára og tvær konur, 22 og 40 ára. Sex karlanna eru á þrítugsaldri, sex á fertugsaldri, einn á fimmtugsaldri og tveir á sextugsaldri.

Um helgina tók lögreglan sex ökumenn sem voru undir áhrifum fíkniefna en fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þetta voru allt karlar á aldrinum 19-40 ára.