18 Ágúst 2009 12:00

Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudag, fimm á laugardag og tíu á sunnudag. Tólf voru teknir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 18-70 ára og þrjár konur, tvær á fertugsaldri og ein á fimmtugsaldri. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.