29 Janúar 2008 12:00

Nokkuð ber á því að ökumenn hirði ekki um að skafa af bílrúðum en fyrir vikið setja hinir sömu sjálfa sig og aðra vegfarendur í hættu með takmörkuðu útsýni. Lögreglan hefur haft afskipti af allmörgum ökumönnum fyrir áðurnefndar sakir, m.a. við grunnskóla en þar má lítið út af bregða í skammdeginu. Af þeim sökum biður lögreglan ökumenn að taka sig á og skafa af bílrúðum en með því er öryggi allra betur tryggt.

Sá sem er trassi í þessum efnum á yfir höfði sér 5 þúsund króna sekt en hún á við um hélaðar rúður á ökutæki. Um það má lesa í 59. gr. reglugerðar um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim.