28 Maí 2008 12:00

Lögreglan stöðvaði fimm ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er vitaskuld með öllu óheimilt á þessum árstíma. Hinir sömu þurfa að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk  og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum.

Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.