24 Júlí 2007 12:00

Sex fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Sautján ára piltur var stöðvaður við akstur í Háleitishverfi í gærmorgun. Hann var í annarlegu ástandi en á vettvangi fundust ætluð fíkniefni. Tæplega hálfum sólarhring síðar voru höfð afskipti af karlmanni á þrítugsaldri á svipuðum slóðum. Sá er einnig grunaður um fíkniefnamisferli. Nokkru áður fóru lögreglumenn að dvalarstað hálfþrítugs karlmanns á öðrum stað í borginni en hjá honum og félaga hans á líkum aldri fundust ætluð fíkniefni.

Rétt fyrir miðnætti stöðvaði lögreglan för fimm ungmenna í austurborginni en í bíl þeirra fundust ætluð fíkniefni. Ungmennin, sem eru á aldrinum 15-18 ára, voru handtekin og flutt á lögreglustöð þar sem haft var samband við foreldra þeirra. Eftir miðnætti var tvítugur piltur tekinn í miðborginni en hann er grunaður um fíkniefnamisferli. Og í nótt fundust ætluð fíkniefni í íbúð hálfþrítugs karlmanns í Hlíðahverfi.