2 Janúar 2012 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á nýársdag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-28 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.