27 Febrúar 2012 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á bæði laugardag og sunnudag og sömuleiðis tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-29 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.