16 Apríl 2012 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 19-33 ára og ein kona, 18 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.