21 Desember 2010 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í miðborg Reykjavíkur og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar á aldrinum 19-39 ára en þrír þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.