1 Febrúar 2011 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 17-30 ára og ein kona um tvítugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.