26 Apríl 2011 12:00

Um páskana voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudaginn langa og laugardag og einn á páskadag og annan í páskum. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 28-36 ára og tvær konur, 27 og 36 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.