4 Apríl 2011 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þrír voru teknir á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-36 ára og ein kona, 29 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en þeirra var jafnframt eftirlýstur fyrir aðrar sakir.