30 Maí 2011 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Tveir voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru allt karlar á aldrinum 20-25 ára en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.