20 September 2011 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 17-39 ára og ein kona um tvítugt. Þess má geta að í bíl yngsta ökumannsins (17 ára) voru fjórir farþegar á aldrinum 16-18 ára.