19 Janúar 2010 12:00

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 17-30 ára. Fimm voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.