26 Apríl 2010 12:00

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir í Reykjavík og Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Þrír voru teknir á laugardag og jafnmargir á sunnudag.  Þetta voru fjórir karlar, 17 -39 ára, og tvær konur, 17 og 40 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.