19 Janúar 2010 12:00

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudag, níu á laugardag og fimm á sunnudag. Þrettán voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 19-49 ára og fjórar konur, 22-34 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.