10 Apríl 2012 12:00

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um páskana. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Fimm voru teknir á skírdag, fjórir á laugardag, þrír á páskadag og fjórir á annan í páskum. Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 15-44 ára og tvær konur, 26 og 45 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.