22 Október 2012 12:00

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tíu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, átta á laugardag og sjö á sunnudag. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 17-44 ára og þrjár konur, 18-27 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.