14 Mars 2008 12:00

Sextíu og fimm ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Ásbraut og í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í dag og í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar.

Brot 21 ökumanns var myndað á Ásbraut, nærri leikskólanum Stekkjarási, fyrir hádegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók stór hluti ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84. 

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Ásbraut, á milli Goða- og Vörðutorgs, fyrir hádegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 64 km/klst. Sá sem hraðast ók mældist á 70. 

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi, við Setbergsskóla, eftir hádegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturrátt en þarna er 30 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og því óku 30% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 52.