1 Desember 2009 12:00

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru sex karlar á aldrinum 17-30 ára og ein kona, 25 ára. Fimm þessara ökumanna voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Tveir voru jafnframt próflausir en annar þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Hinn hefur aldrei öðlast ökuréttindi en hefur samt ítrekað verið tekinn við stýrið.