23 Nóvember 2010 12:00

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þetta voru allt karlar á aldrinum 19-34 ára en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.