29 Ágúst 2011 12:00

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-39 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.