13 Febrúar 2012 12:00

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ. Þrír voru teknir á bæði laugardag og sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-48 ára. Þrír þeirra höfðu jafnframt þegar verið sviptir ökuleyfi.