8 Ágúst 2011 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Þrír voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 17-48 ára og þrjár konur, 20-63 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.