20 September 2011 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18-51 árs og ein kona um tvítugt. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.