7 Nóvember 2011 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, þrír á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 20-54 ára og þrjár konur, 32-74 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Þá var einn tekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en um var að ræða 18 ára pilt sem var stöðvaður á Sæbraut í gærmorgun.