2 Janúar 2012 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir á nýársdag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-24 ára og tvær konur, 26 og 28 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.