28 Júlí 2009 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á laugardag og fimm á sunnudag. Fimm voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Þetta voru sex karlar á aldrinum 15-26 ára og ein kona, 20 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.

Á sama tímabili stöðvaði lögreglan för fimm annarra ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.