16 Mars 2010 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði en sá á síðasttalda staðnum var á stolnum bíl. Fimm voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag.  Þetta voru sex karlar á aldrinum 19-46 ára og ein kona, 18 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.