9 Mars 2010 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.  Þetta voru fimm karlar á aldrinum 24-59 ára og tvær konur, 23 og 34 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.