4 Apríl 2011 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18- 59 ára og ein kona, 20 ára.