9 Maí 2011 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Fjórir voru teknir á laugardag og þrír á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18-48 ára og ein kona, 20 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi.