5 Október 2009 12:00

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skemmdarverkum á bílum í austurborginni í síðustu viku er að mestu lokið. Á annan tug bíla varð fyrir barðinu á skemmdarvargi sem rispaði þá talsvert. Spellvirkinn reyndist vera karl á þrítugsaldri sem glímt hefur við andleg veikindi. Hann hefur verið færður á viðeigandi stofnun.