12 September 2006 12:00

Nokkuð bar á skemmdarverkum í Reykjavík um nýliðna helgi en þau voru af ýmsu tagi. Rúður voru brotnar í grunnskóla og leikskóla og einnig í bifreið. Hliðarspeglar á bifreiðum fengu heldur ekki að vera í friði en þeir voru brotnir af fimm bifreiðum. Þá var brotin rúða í heimahúsi sem og í fyrirtæki.

Rafmagnskassar og ljósastaurar urðu líka fyrir barðinu á skemmdarvörgum en erfitt er skilja hvað það er sem fær fólk til að gera svona hluti. Veggjakrotarar voru líka á ferðinni og þá var eggjum kastað í hús. Öll þessi mál og fleiri til komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík en helgin var erilsöm eins og áður hefur komið fram.

Þá eru ótaldar margar kvartanir sem bárust lögreglunni vegna hávaða í heimahúsum. Af þessu sést að það var einhver ólund í fólki. Ekki er hægt að skilja við helgina án þess að minnast á útivistartíma barna og unglinga. Það skal ítrekað að reglur um útivistartíma gilda jafnt um helgar sem virka daga. Ekki virðast allir hafa það á hreinu því dálítill hópur af krökkum var að þvælast úti þegar þau áttu með réttu að vera komin í háttinn.