22 Apríl 2020 19:12

Undanfarna mánuði hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft til rannsóknar skipulagða brotastarfsemi, sem snýr m.a. að ætlaðri framleiðslu amfetamíns og peningaþvætti. Málið er mjög umfangsmikið, en átta manns voru handteknir í þágu rannsóknar þess í janúar og í framhaldinu voru sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sexmenningarnir voru í haldi lögreglu frá tveimur að tólf vikum, en hinir sömu eru nú allir lausir úr gæsluvarðhaldi. Samhliða var ráðist í á annan tug húsleita víða á höfuðborgarsvæðinu og lagt hald á fíkniefni, vopn og fjármuni.

Rannsókn málsins hefur miðað vel, en einn til viðbótar var handtekinn í lok síðasta mánaðar og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Það hefur nú verið framlengt og situr viðkomandi því enn í gæsluvarðhaldi. Tvær húsleitir voru framkvæmdar í tengslum við handtöku þess síðastnefnda og fannst þá jafnframt talsvert magn af amfetamínbasa. Það er mat lögreglu að vökvann hafi átt að nota við framleiðslu amfetamíns hérlendis.

Alls hefur verið lagt hald á 13,5 lítra af amfetamínbasa í þágu rannsóknarinnar, auk tilbúinna fíkniefna, sem talið er að hafi verið framleidd hérlendis. Þá hefur lögreglan enn fremur tekið í sína vörslu mikið magn stera í þágu málsins. Miðað við dóma í hliðstæðum málum má ætla að verðmæti fyrrnefndra, haldlagðra fíkniefna sé í kringum 230 m.kr. (að teknu tilliti til amfetamínbasans, þ.e. styrkleikans). Þess utan hleypur verðmæti haldlagðra muna í þessu umfangsmikla máli á milljónum króna.

Fleiri umfangsmikil mál eru til rannsóknar hjá embættinu og má þar nefna svokallað Hvalfjarðarmál. Það er með öllu óskylt málinu sem hefur verið reifað hér að ofan, en snýst þó einnig um skipulagða brotastarfsemi, þ.e. peningaþvætti og framleiðslu fíkniefna. Rannsókn þess miðar sömuleiðis vel, en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu. Við aðgerðirnar í báðum málunum hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og tollyfirvalda.

Að endingu má geta þess að andlag fjármunabrotarannsókna hjá miðlægri rannsóknardeild embættisins í dag er í kringum hálfur milljarður. Þar leikur peningaþvætti stórt hlutverk og tengist það skipulagðri brotastarfsemi.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.