7 Febrúar 2020 14:44

Tveir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. mars á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, sem snýr m.a. að ætlaðri framleiðslu amfetamíns og peningaþvætti. Mennirnir voru handteknir í síðasta mánuði samhliða mjög umfangsmiklum aðgerðum lögreglu, en ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á fíkniefni, vopn og fjármuni. Fjórir til viðbótar sátu um tíma í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið, en þeir eru allir lausir úr haldi lögreglu.

Rannsókninni miðar ágætlega, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.