27 Janúar 2020 18:03

Einn sexmenninganna, sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í byrjun síðustu viku, er laus úr haldi lögreglu. Sá var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. janúar, en ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Hinir fimm eru áfram í haldi lögreglu, en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir þeim rennur út á föstudag, 31. janúar.

Sexmenningarnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, sem snýr m.a. að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti. Þeir voru handteknir um þar síðustu helgi samhliða mjög umfangsmiklum aðgerðum lögreglu, en ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á fíkniefni, vopn og fjármuni.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.