15 Mars 2012 12:00

Fjórir karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir voru handteknir í gær í tengslum við rannsókn lögreglunnar á skipulagðri brotastarfsemi en rannsóknin snýr að líkamsmeiðingum, hótunum, innbrotum og þjófnuðum. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri og einn er undir tvítugu. Þeir hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu, mismikið þó.

Eins og fram hefur komið framkvæmdi lögreglan átta húsleitir í gærmorgun á heimilum og í fyrirtækjum í tengslum við rannsókn hennar á skipulagðri brotastarfsemi. Þá voru fimm handteknir og lagt var hald á meint þýfi og fíkniefni. Einum fimmmenninganna var sleppt úr haldi en hinir fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, eins og að framan greinir. Tveir karlar til viðbótar voru handteknir í gær og yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar.