2 Júlí 2019 20:48

Undanfarið hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagt aukinn kraft í rannsóknir mála er snúa að skipulagðri brotastarfsemi, en mansal og vændi eru ein birtingarmynd þess. Í nýrri samantekt embættisins, afbrotatölfræði fyrir maí, mátti lesa um mikla fjölgun kynferðisbrota í umdæminu í maí, en ástæður þessa má rekja til áherslna lögreglunnar er taka til vændismála. Kynferðisbrotin (kaup á vændi – 206. gr. alm. hegningarlaga) voru 17 í fyrrnefndum mánuði og enn fleiri í síðasta mánuði, júní, eða 21. Allt árið í fyrra voru brotin 9, en þetta árið hefur embættið haft meiri mannafla og tíma til að takast á við málaflokkinn og tölurnar endurspegla það. Þess má jafnframt geta að vændismálin eru samtals 48 það sem af er árinu 2019. 

Athygli vekur  að 94% þeirra sem voru staðnir að verki við vændiskaup eru íslenskir karlmenn, en meðalaldur þeirra er 41 ár.  Hinir, 6%, voru erlendir karlmenn, en þetta hlutfall kann að koma einhverjum á óvart. Þeir sem stunda vændi hérlendis eru mestmegnis erlendar konur, en sumar þeirra virðast koma hingað ítrekað þessara erinda. Mansalsmál eru sömuleiðis til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en þau eru þung í vöfum og taka langan tíma. Hér, líkt og á Norðurlöndunum, eru fá mál sem fara alla leið í kerfinu, en það kann að breytast þegar fram líða stundir.