15 Desember 2021 12:24

Glæsilegur hópur lögreglumanna fékk afhent skipunarbréf við hátíðlega athöfn á lögreglustöðinni á Hverfisgötu í gær. Hér að neðan má sjá megnið af hópnum, en alls fengu þrjátíu og níu afhent skipunarbréf. Konur voru þar í meirihluta, eða 22, og karlar 17. Þess má enn fremur geta að hlutfall starfandi lögreglukvenna hjá embættinu hefur hækkað á undanförnum árum og er nú um 35%.