16 Mars 2019 17:48

Björgunarfélag Árborgar í samvinnu við Sérsveit ríkislögreglustjóra og kafara Landhelgisgæslunnar hafa í dag unnið að því að skanna botn Ölfusár neðan við Ölfusárbrú með fjölgeislamælingum.   Aðstæður á og við ána hafa verið mjög góðar og veður einnig.

Við fyrstu greiningu, á vettvangi, á gögnum úr skönnun komu upp atriði sem tilefni var til að skoða betur og reyndist unnt að útiloka sum þeirra með málmleitartæki og með því að setja Gopro myndavélar niður á þeim hnitum í ánni en önnur gefa tilefni til frekari skoðunar þar sem að þar kom straumþungi, dýpi og grugg í veg fyrir að unnt væri að sannreyna með fullri vissu hvað væri þar.   Allt að einu er búið að safna umtalsverðu af gögnum og í raun mun meiri en væntingar stóðu til.

Næst er að tengja saman gögnin úr hverri ferð með skannann og sjá hvort eitthvað kemur í ljós þar sem gefur síðan tilefni til frekari skoðunar.   Þess má vænta að sú vinna taki alla næstu viku.

Eins og svo oft áður er full ástæða til að þakka þessum aðilum, líkt og öðrum viðbragðsaðilum,  fyrir frábæra vinnu við krefjandi aðstæður.