8 Desember 2011 12:00

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í austurborginni föstudaginn 18. nóvember sl. Tveimur þeirra er gert að sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 22. desember og einum til 16. desember. Einn karl til viðbótar hefur sömuleiðis verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember en sá var handtekinn í gær. Fjórmenningarnir eru á þrítugs- og fertugsaldri.