11 Febrúar 2022 12:58

Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudagsins 18. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Grafarholti í fyrrinótt.

Úrskurðirnir voru kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur.