4 Janúar 2011 12:00

Tveir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 1. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Mennirnir voru handteknir eftir skotárás í Háaleitishverfi á aðfangadag og hafa setið í gæsluvarðhaldi frá 25. desember en þeir hafa báðir játað aðild sína að málinu. Lögreglan lagði einnig fram kröfu um fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum mönnum, sem hafa sömuleiðis játað aðild sína að málinu, en á hana var ekki fallist í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hinir síðarnefndu sátu líka í gæsluvarðhald frá 25. desember en eru nú lausir úr haldi lögreglu. Mennirnir fjórir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu. Rannsókn málsins er lokið og verður það nú sent embætti ríkissaksóknara til frekari meðferðar.

Málsatvik voru þau að tveir karlar komu að húsi í fyrrnefndu hverfi á aðfangadagsmorgun og virtust þeir eiga eitthvað vantalað við húsráðandann. Kom til átaka en mennirnir héldu síðan á brott en sneru svo aftur að húsinu um hádegisbil ásamt tveimur öðrum mönnum og höfðu þá jafnframt haglabyssu meðferðis. Tveimur skotum var hleypt af haglabyssunni og höfnuðu þau bæði í útidyrahurð en byssan var einnig notuðu til að brjóta rúðu í húsinu. Engan sakaði við þetta en heimilisfólkið hafði forðað sér út bakdyramegin áður en skotið var á húsið. Árásarmennirnir voru handteknir þegar þeir reyndu að komast undan og slasaðist þá einn lögreglumaður, þó ekki alvarlega. Haglabyssan fannst á vettvangi og var hún tekin í vörslu lögreglu. Tilefni árásarinnar er talið vera uppgjör skulda.