22 Nóvember 2011 12:00

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás í austurborginni sl. föstudagskvöld miðar ágætlega. Tveir karlar á þrítugsaldri sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. Bíll mannanna var haldlagður en í honum fannst stór kylfa, ekki ósvipuð óeirðakylfum, en skotvopnið er hins vegar ófundið. Þriðji maðurinn var jafnframt handtekinn í gær en sá er innan við tvítugt. Honum var sleppt úr haldi eftir yfirheyrslur.