25 Desember 2023 10:42

Lögregla hefur nú til rannsóknar mál frá því í gærkvöldi þar sem tveir menn komu inn í íbúð í Hafnarfirði og hleyptu af skotum. Heimilisfólk var á staðnum en enginn slasaðist. Lögregla vopnaðist og var með mikinn viðbúnað. Rannsókn málsins er í fullum gangi.

Ekki verða frekari upplýsingar gefnar að svo stöddu.