24 Nóvember 2020 14:21

Skráð voru 848 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2020.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða en þó ber að taka fram að það sem af er ári hafa borist um fjögur prósent færri tilkynningar um þjófnaði en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan. Tilkynningum um innbrot fækkaði á milli mánaða.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi eða hótað um ofbeldi fjölgaði á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði smávægilega á milli mánaða. Það sem af er ári hafa borist um 12 prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili á árunum 2017-2019.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 30 tilkynningar um kynferðisbrot sem tilkynnt voru í októbermánuði. Tilkynningum um kynferðisbrot fjölgar miðað við útreiknuð efri mörk fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan en vert er að taka fram að það sem af er ári hafa borist um 27% færri tilkynningar um kynferðisbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og var ekkert stórfellt fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í október. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í október voru skráð 709 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráð um 16 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.